Samstarfsamningur við Advania (áður Skýrr)
23.1.2012
Í síðustu viku undirrituðu Advania (áður Skýrr) og Endurmenntun HÍ samstarfssamning. Markmið samningsins er að tryggja sem fjölbreyttast og best framboð af námskeiðum fyrir starfsfólk Advania. Starfsfólkið getur því bæði sótt sérsniðin námskeið og opin námskeið á afsláttarkjörum sem miðast við þann fjölda starfsmanna sem sækja námskeið á ársgrundvelli.
Það er einnig ánægjulegt að geta þess að á meðan á viðræðum stóð var ákveðið að tveir sérfræðingar frá Advania myndu taka að sér kennslu á námskeiði hjá Endurmenntun og gert er ráð fyrir að fleiri námskeið verði í boði í framtíðinni þar sem sérfræðingar Advania munu spreyta sig í kennslu.

Samningurinn var undirritaður af Hermanni Jónssyni, forstöðumanni Advania skólans og Kristínu Jónsdóttur Njarðvík, endurmenntunarstjóra