Samstarfssamningur við Stjórnvísi

25.1.2012

Stjórnvísi og Endurmenntun Háskóla Íslands hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning.


Markmiðið með samningnum er að auka samstarf og standa að sameiginlegum námskeiðum að lágmarki tvisvar á ári. Félagsmenn Stjórnvísis hljóta þá afslátt af sameignilegum námskeiðum.


Endurmenntun býður faghópum Stjórnvísi jafnframt að framkvæma fræðslukönnun, þeim að kostnaðarlausu. Markmið könnunarinnar er að auðvelda stjórn faghópsins og Endurmenntun að koma enn betur til móts við þarfir félagsmanna með öflugum fagfundum faghópsins eða námskeiðum Endurmenntunar.


Samningurinn var undirritaður af Gunnhildi Arnardóttur, framkvæmdastjóra Stjórnvísi og Kristínu Jónsdóttur Njarðvík, endurmenntunarstjóra