Samstarfssamningur við Félag stjórnsýslufræðinga

27.1.2012

Félag stjórnsýslufræðinga og Endurmenntun Háskóla Íslands hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning.


Markmiðið með samningnum er að auka samstarf og standa að sameiginlegum námskeiðum að lágmarki tvisvar á ári. Félagsmenn í Félagi stjórnsýslufræðinga hljóta þá afslátt af sameiginlegum námskeiðum. Einnig býður Endurmenntun félagsmönnum valin námskeið úr framboði sínu með sérstökum afsláttarkjörum.


Endurmenntun hyggst gera fræðslukönnun meðal félagsmanna á næstu vikum, þeim að kostnaðarlausu. Markmið könnunarinnar er að auðvelda félaginu og Endurmenntun að koma auga á fræðsluþarfir félagsmanna.

Við hjá Endurmenntun hlökkum til samstarfsins og viljum gjarnan efla tengslin við þennan faghóp.

Nánari upplýsingar um Félag stjórnsýslufræðinga má finna á heimasíðunni þeirra hér


Við undirritun samningsins: Kristín Jónsdóttir Njarðvík, endurmenntunarstjóri, Eggert Ólafsson, formaður Félags stjórnsýslufræðinga og Rósa Guðrún Bergþórsdóttir, ritari félagsins.