Aðfaranám í almennri efnafræði

Hvenær: 03.08.2011 - 25.08.2011

Fyrir þá sem ætla sér í nám á háskólastigi og þurfa að bæta við sig eða rifja upp þekkingu í almennri efnafræði. Sérstaklega gagnlegt fyrir væntanlega nemendur í hjúkrunarfræði þar sem efnafræði 1. misseris er samblanda lífrænnar efnafræði en þó aðallega lífefnafræði. Grunnþekking í almennri efnafræði er nauðsynleg til að hægt sé að tileinka sér námsefnið. Námskeiðið hentar vel sem upprifjun í efnafræði fyrir nemendur sem eru að koma til náms eftir námshlé. Námskeiðið er án prófs.
Skráningarfrestur til 30. júní 2011

Nánari upplýsingar hér 

 


Akademísk vinnubrögð - aukanámskeið

Hvenær: 15.08.2011 - 23.08.2011

Vegna mikillar aðsóknar er námskeiðið endurtekið.
Ætlað öllum sem eru að hefja háskólanám og öðrum sem vilja bæta sig í akademískum vinnubrögðum. Námskeiðsdögum hefur nú verið fjölgað úr fimm í sex skipti og lögð aukin áhersla á glósu- og námstækni.

Skráningarfrestur er til 10. ágúst 2011

Nánari upplýsingar hér 

 


Fjölskyldumeðferð - Nám á meistarastigi

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð og Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd.

Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar.
Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur:
Hafa tveggja til þriggja ára starfsreynslu á sviðinu
Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð
Vera starfandi á sviðinu á meðan á námi stendur
Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi

Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal.

Nánari upplýsingar hér 

 


Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar
- fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjafasamningum, ráðningu hönnuða, útboðum, gerð útboðsgagna, samningum við verktaka, fjármögnum verkefna og áhættugreiningu innan fyrirtækja og stofnanna. Námið hentar tæknifræðingum, verkfræðingum, arkitektum, landslagshönnuðum og lögfræðingum ásamt öðrum ráðgjöfum í skyldum fögum sem og verktökum, verkkaupum sem hyggjast tileinka sér þetta sérsvið.

Nánari upplýsingar hér 

 


Hugræn atferlismeðferð: eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám (Haust 2011)

Hvenær: 23.09.2011 - 15.06.2012

Í samvinnu við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).

Eins árs námið er fyrst og fremst hagnýtt nám og er ætlað fyrir ýmsar háskólamenntaðar fagstéttir sem geta nýtt aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í sínu starfi, s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, kennara, þroskaþjálfa og náms- og starfsráðgjafa.

Nánari upplýsingar hér 

 


Íslenskt nútímasamfélag

Hvenær: 28.02.2012 - 21.03.2012

Námskeiðið fellur undir námsbrautina Leiðsögunám á háskólastigi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 


Leiðsögunám á háskólastigi - einnig kennt í fjarnámi

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Leiðsögunám á háskólastigi er námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi. 

Námið er viðurkennt sem aukagrein með ferðamálafræði svo og í eftirfarandi deildum á hugvísindasviði Háskóla Íslands: deild erlendra tungumála, íslensku- og menningardeild og sagnfræði- og heimspekideild.

Nánari upplýsingar hér 

 


Nám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Endurmenntun Háskóla Íslands mun bjóða upp á réttindanám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala.

Nánari upplýsingar hér 

 


Námstækni

Hvenær: 31.08.2011 - 07.09.2011

Ætlað nemendum sem eru að hefja nám hjá Endurmenntun HÍ. Hentar þeim sem ekki hafa sótt sambærileg námskeið áður.
(Ath. þetta er óskylt námskeiðinu Akademísk vinnubrögð).

Nánari upplýsingar hér 

 


Náttúra Íslands - Lífríki

Hvenær: 05.01.2012 - 25.01.2012

Námskeiðið fellur undir Leiðsögunám á háskólastigi, sem er ný námsbraut hjá Endurmenntun HÍ. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 4 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 


Náttúra Íslands - jarðfræði

Hvenær: 02.02.2012 - 22.02.2012

Námskeiðið fellur undir námsbrautina Leiðsögunám á háskólastigi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 4 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 


Sérnám í hugrænni atferlismeðferð: tveggja ára nám fyrir sálfræðinga og geðlækna (Haust 2011)

Hvenær: 23.09.2011 - 15.06.2013

Í samvinnu við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).

Tveggja ára sérnám í hugrænni atferlismeðferð er ætlað sálfræðingum og geðlæknum.
Inntökuskilyrði í tveggja ára námið eru:
- Framhaldsnám í klínískri sálfræði eða ráðgjafarsálfræði eða löggilt sálfræðileyfi.
- Nám í geðlækningum.
- Sérhæft framhaldsnám í meðferð á sálrænum eða geðrænum vandkvæðum með grundvallar námskeiðum í sálarfræði.
Námið er 64 ECTS einingar.

Nánari upplýsingar hér 

 


Stærðfræði fyrir nýnema á Verkfræði- og náttúruvísindasviði

Hvenær: 08.08.2011 - 23.08.2011

Í samstarfi við Raunvísindadeild Háskóla Íslands


Einkum ætlað þeim sem telja sig þurfa að rifja upp og/eða kynna sér betur námsefni í stærðfræðinámi náttúrufræði- og eðlisfræðibrauta í framhaldsskólum.

Skráningarfrestur er til 4. ágúst 2011

Nánari upplýsingar hér 

 


Undirbúningsnámskeið fyrir nýnema í lögfræði

Hvenær: 22.08.2011 - 23.08.2011

Stutt námskeið fyrir nýnema í lögfræði þar sem þátttakendur verða búnir undir nám í almennri lögfræði. Námskeiðið mun ekki lúta að því efni sem kennt er í almennunni heldur hagnýtum atriðum sem gott er að þekkja og tileinka sér strax til þess að ná sem mestum árangri í náminu.

Nánari upplýsingar hér 

 


Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námið er í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar.
Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.


Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.

Nánari upplýsingar hér