Styrkir til endurmenntunar eru veittir fagfélögum, framhaldsskólum og einstaklingum.

Umsóknarfrestur er tvisvar á ári, 30. apríl og 31. október. Berist umsókn of seint verður hún tekin fyrir við næstu úthlutun. Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiða eftir á, þó mega ekki vera liðnir meira en 12 mánuðir frá því að námskeið var sótt.  Umsóknarfrestur fagfélaga um sumarnámskeið er 1. desember.

Allar umsóknir eru afgreiddar á fundi fljótlega eftir að umsóknarfrestur rennur út og fá umsækjendur svar bréfleiðis. Mikilvægt er að vanda til umsóknar eins og hægt er, senda nauðsynleg fylgigögn (t.d. staðfestingar eða afrit kvittana) til að flýta fyrir afgreiðslu.

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að kennari sé í a.m.k. 50% kennslu.
Nefndi styrkir ekki framhaldsskólakennara sem eru í námsorlofi.

Fagfélög

Skólar

Einstaklingar