Einingabær námskeið á grunnstigi
Mögulegt er að sækja nokkur sjálfstæð námskeið úr námsbrautum Endurmenntunar. Námskeiðin er hægt að fá metin til eininga í grunnnám á háskólastigi og eru einhver þeirra kennd í fjarnámi. Þau eru hluti af námsbrautum Endurmenntunar.
Námskeiðin eru kjörin fyrir þá sem vilja auka menntun sína samhliða starfi og safna jafnframt einingum í grunnnám á háskólastigi. Verkefni eru raunhæf og hagnýt enda iðulega sett í samhengi við þær áskoranir sem nemendur standa frammi fyrir í eigin starfi. Við þetta bætist að nemendur hafa mjög ólíkan bakgrunn og reynsluheim sem eykur til muna gildi námskeiðanna.
Fjarnemar sækja kennslustundir á vefsvæði námskeiðsins en sá valmöguleiki stendur einnig þeim sem eru í staðnámi til boða ef þeir missa af tíma.
Forkröfur fyrir námskeiðin er stúdentspróf eða sambærileg menntun.