Hlutverk
Hlutverk Endurmenntunar Háskóla Íslands er að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi.
Stefna
-
Stefna Endurmenntunar Háskóla Íslands er að vera ávallt eftirsóknarverðasti valkostur fyrirtækja, stofnana og einstaklinga til símenntunar á Íslandi.
- Með öflugri nýsköpun í námsframboði og þjónustu Endurmenntunar er unnið að því að auka hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi. Með það að markmiði er unnið náið með deildum Háskóla Íslands og öðrum samstarfsaðilum.
- Endurmenntun er skilvirkur farvegur fyrir miðlun þekkingar Háskóla Íslands til samfélagsins.
Fjölbreytt starfsemi
Endurmenntun Háskóla Íslands hefur starfað frá árinu 1983 og hefur umsvif hennar vaxið ár frá ári. Stjórn Endurmenntunar er skipuð fulltrúum Háskóla Íslands sem eru valdir af háskólaráði til þriggja ára.
Stjórn Endurmenntunar skipa:
Magnús Þór Jónsson, prófessor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði - stjórnarformaður
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor á Félagsvísindasviði - varaformaður
Hróbjartur Árnason, lektor á Menntavísindasviði
Oddný Sverrisdóttir, dósent á Hugvísindasviði
Vilborg Lofts, rekstrarstjóri á Heilbrigðisvísindasviði
Meginviðfangsefni Endurmenntunar er símenntun á háskólastigi. Flest námskeið á vegum stofnunarinnar eru 4-25 klukkustundir en allmörg ná yfir heilt misseri. Í vaxandi mæli er boðið upp á námsbrautir sem ljúka alla jafnan með prófum. Þá er boðið upp á réttindanám á vegum ráðuneyta og sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir svo skipuleggja megi stöðuga framþróun og símenntun hjá starfsfólki.
Markmið
Markmið Endurmenntunar HÍ er að veita háskólamenntuðu fólki og almenningi fjölbreytt tækifæri til sí- og endurmenntunar. Starfsemi stofnunarinnar nær einnig til opinberra stofnana, félagasamtaka og einkafyrirtækja.
Námskeið
Námsbrautir
Námskeið á meistarastigi haldin í samstarfi við deildir HÍ
EHÍ kort og símanúmer ....