Í brennidepli


Lykilþættir þjónustu - hefst í febrúar
Nýja námskeiðslínan okkar Lykilþættir þjónustu - markviss leið verður í boði á vormisseri. Ætlunin er að hefja kennslu í lok febrúar en umsóknarfrestur er til 6. febrúar. Áhugasamir geta kynnt sér námskeiðslínuna nánar hér

Nýr bæklingur - starfstengd námskeið
Kominn er út bæklingur með námskeiðum á vormisseri á sviðum fjármála, stjórnunar og starfsþróunar sem eiga erindi til einstaklinga á flestum sviðum atvinnulífsins.
Hægt er að skoða hann hér – smellið á námskeiðsheitið til að fá frekari upplýsingar.

Fjölbreytt námskeið í fjarfundi á vormisseri
Á vormisseri verða nokkur hagnýt námskeið send út í fjarfundi. Með þessu móti er ætlunin að auka framboð til íbúa á landsbyggðinni og auka gæði námskeiða í fjarfundi.
Skráning og upplýsingagjöf fer fram hjá Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum. Námskeiðsframboðið má skoða hér

Dæmi um námskeið á næstunni:

Árið 2011 – Nýlegar breytingar á skattalögum
haldið 27. janúar

Söngleikurinn Vesalingarnir
hefst 30. janúar

Agile Testing
skráningarfrestur til 27. janúar

Örlög og ástir á þýsku: þjálfun í þýsku talmáli og þýskum kurteisisvenjum á nýstárlegan hátt
skráningarfrestur til 1. febrúar

Sjálfsvígsfræði - með sérstöku tilliti til sjálfsvíga ungs fólks
skráningarfrestur til 27. janúar

Samskipti foreldra og barna
skráningarfrestur til 30. janúar